Fréttir

Leiknir fékk nágranna okkar í Neista í heimsókn á Eskjuvöll þann 14. ágúst. Leikurinn var styrktarleikur fyrir Dagnýju Ósk Vestmann, sem stendur nú í erfiðri baráttu við veikindi.
Allur ágóði af leiknum rann óskiptur til Dagnýjar og fjölskyldu hennar, auk ágóða af hamborgarasölu. Alls söfnuðust um 500.000 krónur.
Við viljum þakka öllum kærlega fyrir frábæra mætingu og stuðninginn.
Úrslit leiksins féllu því miður ekki okkar megin að þessu sinni og lauk leiknum með 2–5 tapi. Við viljum þó óska nágrönnum okkar á Djúpavogi innilega til hamingju með titilinn!
Engin ummæli enn
